Nýtt umsóknarferli um skólavist í grunnskólum

Innritun er hafin fyrir börn sem eiga að hefja nám í 1. bekk haustið 2026. Umsóknir um skólavist fara nú fram rafrænt í gegnum Nemendagrunn og skráning fer fram með rafrænum skilríkjum.
Foreldrar og forráðamenn sækja um skólavist fyrir börn sín hér.
 
Einnig er hægt að sækja um í gegnum MittReykjanes, þar sem hlekkur á umsóknir sveitarfélagsins er að finna.
 
Í Reykjanesbæ sækja nemendur grunnskóla samkvæmt skólahverfum. Nemendur með lögheimili í tilteknu skólahverfi hafa forgang á skólavist ef skóli þarf að takmarka nemendafjölda.
Nánari upplýsingar um grunnskóla Reykjanesbæjar og skólahverfi má finna hér.
 
Foreldrum eða forráðamönnum sem ekki hafa rafræn skilríki er bent á að hafa samband við skrifstofu þess grunnskóla sem sótt er um í þar sem veitt er aðstoð við að fylla út og skila umsókn.
Nánari upplýsingar og fræðslu um Nemendagrunn má finna vef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu hér. Þar er m.a. hægt að skoða kennslumyndband sem sýnir umsóknarferlið skref fyrir skref.