Nýtt útilistaverk afhjúpað á Barnahátíð

Frá afhjúpun listaverksins.
Frá afhjúpun listaverksins.

Verkið heitir „Heimur undirdjúpanna“ og er staðsett utan á gamla frystihúsinu Brynjólfi í Innri-Njarðvík.  Verkið er fiskinet sem hengt hefur verið á vegginn og síðan er aragrúi leirverka af fiskum, skeljum og öðru sjávarlífi eftir nemendur hengur á netið. Þetta verk var unnið í tengslum við Barnhátíð og var framlag Akurskóla í listverkefninu „Listaverk í leiðinni“.  Myndmenntakennarinn og listakonan Helga Lára Haraldsdóttir stjórnaði verkinu og  eiga allflestir nemendur Akurskóla hlut í verkinu.
Hugmyndin er sú að gangandi vegfarendur sem eiga leið eftir hinni vinsælu Strandleið njóti góðs af auk þess sem nemendur læra að meta umhverfislist, liti, fegurð sjávarins og menningu okkar.
Árni Sigfússon bæjarstjóri afhjúpaði verkið á hátíðinni.