Óðinsvellir 17 Ljósahús Reykjanesbæjar 2010

Ljósahúsið við Óðinsvelli 17.
Ljósahúsið við Óðinsvelli 17.

Viðurkenningar fyrir fallega skreytt hús á aðventu voru afhent í gær í samkeppninni um Ljósahús Reykjanesbæjar 2010.

Reykjanesbær hefur staðið fyrir samkeppninni frá árinu 200 en bærinn hefur lengi verið þekktur ljósadýrð. Margir hafa lagt leið sína til bæjarins á aðventu á ljósarúnt en hægt er að nálgast upplýsingar um verðlaunahúsin og tilnefningar á korti á jólavef bæjarins.

Óðinsvellir 17 urðu fyrir valinu sem Ljósahús Reykjanesbæjar 2010. Í öðru sæti varð Steinás 14 og í því þriðja Heiðarbraut 5c.
Óðinsvellir hlaut viðurkenningu fyrir fallegustu heildarmynd götu, Hátún 24 fyrir fallega heildarmynd á tvíbýlishúsi og Baldursgarður 12 fyrir fallega skreytt jólatré.

Jólahús barnanna var valið Túngata 14 sem oft hefur hlotið viðurkenninguna en skreytingarnar eru orðnar fastur liður í aðventu hjá börnum í bænum. Hlaut eigandinn að þessu sinni styrk til að sinna skreytingum betur.

Hitaveita Suðurnesja afhenti verðlaunahöfum styrk að upphæð kr. 30.000 fyrir 1. sæti, 20.000 fyrir 2 sæti og 15. fyrir 3 sæti.