- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Tvö metnaðarfull verkefni í Reykjanesbæ hafa hlotið styrki frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu sem ætlaðir eru verkefnum í þágu farsældar barna. Um er að ræða verkefnin Allir í körfu hjá Ungmennafélagi Njarðvíkur og Hjarta Ásbrúar hjá Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar.
Styrkirnir eru mikilvæg viðurkenning á því öfluga starfi sem unnið er í Reykjanesbæ til að efla þátttöku barna og fjölskyldna í íþrótta-, tómstunda- og samfélagsstarfi. Bæði verkefnin leggja áherslu á að skapa fleiri tækifæri fyrir börn til að taka virkan þátt í sínu nærumhverfi og styrkja félagsleg tengsl.
Ungmennafélagið Njarðvík hlaut 1,3 milljóna króna styrk fyrir verkefnið Allir í körfu. Markmið verkefnisins er að auka aðgengi barna á Ásbrú að skipulögðu körfuboltastarfi með því að draga úr hindrunum sem geta komið í veg fyrir þátttöku, svo sem kostnaði, tungumálahindrunum og samgöngum.
Verkefnið er ætlað börnum á aldrinum 6 til 16 ára og styður við jöfn tækifæri barna til þátttöku í íþróttastarfi og félagslífi.
Íþróttabandalag Reykjanesbæjar hlaut 5 milljóna króna styrk fyrir verkefnið Hjarta Ásbrúar, sem er farsældarmiðstöð fyrir börn og fjölskyldur á Ásbrú.
Verkefnið felur í sér starfsemi í Andrews Theater þar sem börn og fjölskyldur geta komið saman til hreyfingar, skapandi starfs, samveru og stuðnings í opnu og aðgengilegu umhverfi. Markmiðið er að efla vellíðan, þátttöku og samfélag barna og fjölskyldna á svæðinu.
Það er afar ánægjulegt að sjá verkefni úr Reykjanesbæ fá þennan stuðning. Styrkirnir munu nýtast til að efla enn frekar það mikilvæga starf sem unnið er í þágu barna og fjölskyldna og styðja við aukna þátttöku, tengslamyndun og farsæld í samfélaginu.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)