Óhreinsað skólp í sjó vegna blautklúta

Mynd tekin af vef Orkuveitu Reykjavíkur
Mynd tekin af vef Orkuveitu Reykjavíkur

Starfsmenn Umhverfismiðstöðvar sem sjá um hreinsistöðina á Fitjabraut finna fyrir töluvert meira álagi vegna þess að íbúar eru að henda sprittklútum og eldhúspappír í salernin. Ástæða fyrir þessari aukningu er líklega vegna Covid-19 en aðrar veitur hafa verið að lenda í svipuðum vandamálum. Slíkur pappír eyðist ekki í kerfinu eins og salernispappír og festist í dælum og öðrum búnaði í hreinsistöðinni með tilheyrandi stíflum og vandræðum. Hreinsistöðin á Fitjabraut tekur við fráveitu frá Njarðvík, ytri og innri og Ásbrú.

Að sögn Guðlaugs H. Sigurjónssonar sviðsstjóra Umhverfissviðs kemur þetta fram í töluverðri yfirlegu starfsmanna Umhverfismiðstöðvar þar sem stöðva þarf dælingu og hreinsa tækjabúnaðinum. „Við viljum brýna fyrir íbúum að henda slíkum pappír ekki í salernin þar sem þetta skemmir hjá okkur dýran búnað.“