Öll svið samfélagsins þurfa að taka þátt í að auka vellíðan

Ráðstefnugestir í Bergi, Hljómahöll.
Ráðstefnugestir í Bergi, Hljómahöll.

Ráðstefna Samtakahópsins um heilsueflandi samfélags í Reykjanesbæ fór fram í Stapa miðvikudaginn 16 maí síðastliðinn. Um 80 manns mættu á ráðstefnuna. Mörg áhugaverð heilsu- og forvarnarverkefni voru kynnt auk nýjustu niðurstaðna Rannsókna- og greiningar á lýðheilsu ungs fólks í Reykjanesbæ.

Það var Kristján Freyr Geirsson varðstjóri forvarna lögreglunnar í Reykjanesbæ sem setti ráðstefnuna.  Fyrstur í pontu var Hafþór Barði Birgisson sem kynnti Samtakahópinn. Hafþór fór yfir helstu  verkefni hópsins, en hópurinn hefur verið með fyrirlestra um ábyrga netnotkun, forvarnardag ungra ökumanna, fjölmenningardag og margt fleira. Að auki stýrir Samtakahópurinn  heilsueflandi samfélagi og þau hafa verið með heilsu og forvarnarviku á haustin og einnig staðið fyrir hreyfiviku Reykjanesbæjar. Samtakahópurinn er þverfaglegur forvarnarhópur sem starfað hefur síðan 2003 og þau grípa strax inn í mál er varða forvarnir ef þurfa þykir.

Þá kynnti Margrét Lilja Guðmundsdóttir frá Rannsóknum og greiningu ný gögn um lýðheilsu ungs fólks í Reykjanesbær. Samkvæmt gögnum hefur samverustundum fjölskyldunnar fækkað mikið í Reykjanesbæ bæði eftir að skóla lýkur og um helgar.  Margrét Lilja benti á að samvera með fjölskyldunni sé verndandi þáttur í forvörnum.
Yfirgnæfandi hluti barna er í mjög flottum málum og forvarnarstarf á Íslandi hefur gengið frábærlega kom fram í máli  Margrétar Lilju.

Heilsueflandi samfélag vellíðan fyrir alla

Gígja Gunnarsdóttir verkefnastjóri Heilsueflandi samfélags hjá Embætti landlæknis var næst í pontu. Hún kom m.a. inn á að allt í samfélaginu hefur áhrif á vellíðan og öll svið samfélagsins þurfa að taka þátt í að auka vellíðan. Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lífsháttum og vellíðan allra íbúa. Það þarf að skoða öll æviskeiðin þegar unnið er að heilsueflingu í samfélaginu. Gígja lauk máli sínu með því að leggja áherslu á góð vinna sé unnin í Reykjanesbæ.

Að lokum kom B. Sif Stefánsdóttir frá Heilsuleikskólanum Garðasel í Reykjanesbæ og sagði frá leikskólanum. Mikil útivera og hreyfing er á leikskólanum og taka foreldrar virkan þátt og skrá hreyfingu barna heima við.  Leikskólinn tekur einnig þátt í verkefninu „Leikur að læra“  þar sem börnunum er kennt á hreyfingu, eins og Sif orðar það. „Við erum lifandi leikskóli með heilsuna að leiðarljósi,“ sagði Sif að lokum.

Kristján Freyr Geirsson fundarstjóri sleit ráðstefnunni með þessum orðum: „Við getum verið stolt af því sem við höfum verið að gera. Við erum frábær!“