- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á vígslu nýja leikskólans Drekadals í Reykjanesbæ föstudaginn 6. febrúar frá 15:00 til 16:00.
Leikskólinn hefur nú opnað í glænýrri og glæsilegri aðstöðu eftir að hafa starfað í tímabundnu húsnæði í Keili á Ásbrú.
Fyrsti áfangi leikskólans opnaði í nóvember og býður upp á pláss fyrir 90 börn. Stefnt er að því að taka á móti um 120 börnum alls á fimm heimstofum sem bera heitin Hákot, Stapakot, Tjarnarkot, Drekakot og Móakot. Nafnið Drekadalur er valið til að kveikja ímyndunarafl og sköpunargleði og skapa sannkallaðan ævintýraheim fyrir börn, foreldra og starfsfólk.
Aðstaðan er rúmgóð og nútímaleg og býður upp á fjölbreytta möguleika til leiks og náms. Hljóðvist, loftræsting og góð birtuskilyrði stuðla að rólegu og notalegu umhverfi. Þá fær útisvæðið sérstakt lof og er talið eitt það glæsilegasta á landinu með fjölbreyttum tækifærum til hreyfingar, könnunar og sköpunar.
Hlökkum til að sjá ykkur og fagna þessum áfanga saman!

Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)