Opinn fundur á ensku með frambjóðendum

Miðvikudaginn 29. apríl verður haldinn opinn fundur á ensku þar sem fulltrúar stjórnmálaflokka og framboðslista sem bjóða fram í sveitarstjórnarkosningum í Reykjanesbæ árið 2026 munu kynna áherslur sínar og stefnur.
 
Fundurinn er ætlaður öllum sem vilja kynna sér stefnumál framboðanna og fá betri innsýn í helstu málefni sem varða sveitarfélagið. Gestum gefst jafnframt kostur á að bera fram spurningar og eiga samtal við frambjóðendur. Fundarstjóri verður Marion Poilvez, skjalavörður W.O.M.E.N. samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi.
 
Fundurinn er haldinn miðvikudaginn 29. apríl kl.19:30 og stendur til 21:00, í Ráðhúsi Reykjanesbæjar, Grænásbraut 910 á Ásbrú. Öll eru velkomin!
 
Fundurinn er haldinn í samstarfi við félagasamtökin W.O.M.E.N. Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og verkefnið Mitt atkvæði mín rödd // My vote my voice.