Opinn íbúafundur um áhrif framkvæmda á flugbrautir

Mynd úr ársskýrslu Isavia 2016.
Mynd úr ársskýrslu Isavia 2016.

Isavia heldur opinn íbúafund í Bíósal Duus Safnahúsa 17. maí kl. 17:00 þar sem farið verður yfir framkvæmdir við flugbrautarkerfi Keflavíkurflugvallar í sumar. Ljóst er að framkvæmdirnar munu hafa áhrif á flugumferð og hljóðvist. Kynntar verða niðurstöður hljóðmælinga og vefur sem opinn er almenningi og sýnir flugumferð á rauntíma.

Frummælendur á fundinum eru: 

  • Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia
  • Þröstur Söring, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Keflavíkurflugvallar
  • Valur Klemensson, deildarstjóri umhverfisdeildar Keflavíkurflugvallar
  • Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar