Opnað fyrir umsóknir í vetrarfrístund

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í frístundaheimili grunnskólanna fyrir 1. – 4. bekkinga skólaárið 2023 – 2024.

Sótt er um í gegnum www.mittreykjanes.is, þar er hlekkur í umsóknarkerfi sem heitir Vala frístund. Inn í Völu geta foreldrar séð allt sem tengist umsókninni. Nánari upplýsingar um starfið í hverju frístundaheimili er að finna á heimasíðum skólanna.

Völukerfið er hannað sem sjálfsafgreiðslukerfi og eiga foreldrar því að sækja þar um, óska eftir breytingum, skrá frístundaakstur og segja upp frístundardvöl. Foreldrar þurfa að samþykkja boð um vistun sem berst í tölvupósti eftir að umsókn hefur verið afgreidd.

Foreldrar eru hvattir til þess að sækja um fyrir 31. maí svo að hægt sé að tryggja mönnun á frístundaheimilum út frá fjölda nemenda sem sækir um.

Skráning í frístundaakstur hefst eftir að skólastarf hefst í ágúst og munu foreldrar fá frekari upplýsingar þegar sú skráning fer af stað.

ATH! Foreldrar með systkin á leikskólunum; Akri, Gimli, Skógarási og Velli eða hjá dagforeldrum eru beðnir um að setja inn upplýsingar um systkin vegna fjölskylduafsláttar í reitinn annað. Völukerfið heldur utan um systkin hjá öðrum leikskólum Reykjanesbæjar sem hafa tekið upp Völukerfið.

Frístundaheimili grunnskólanna
Gjaldskrá fyrir árið 2023 – frá ágúst - desember


  • Frístundaskóli (síðdegishressing innifalin): 20.266 kr. á mánuði
  • Síðdegishressing: 167 kr. á dag
  • Tímagjald: 441 kr. hver klukkustund

Fjölskylduafsláttur (gildir eingöngu af tímagjaldi, þ.e. síðdegishressing dregin frá heildargjaldi) gildir milli skólastiga, þ.e. dagforeldra, leikskóla og frístundaskóla. Gjöld eru greidd eftir á, gjalddagi er síðasti dagur mánaðar og eindagi 20 dögum síðar