- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í frístundaheimili grunnskólanna fyrir skólaárið 2026 – 2027. Umsóknir eru fyrir börn í 1. – 4. bekk.
Sótt er um í gegnum Mitt Reykjanes, þar sem finna má tengil í umsóknarkerfið Völu frístund. Í Völu geta foreldrar og forsjáraðilar fylgst með stöðu umsóknar og séð allar upplýsingar sem tengjast vistun barnsins. Nánari upplýsingar um starfsemi frístundaheimilanna má finna á vefsíðum skólanna.
Vala frístund er sjálfsafgreiðslukerfi þar sem foreldrar og forsjáraðilar geta sótt um vistun, óskað eftir breytingum, skráð frístundaakstur þegar skráning opnar og sagt upp frístundardvöl. Þegar umsókn hefur verið afgreidd berst tölvupóstur með boði um vistun sem þarf að samþykkja í kerfinu.
Við hvetjum foreldra til að sækja um fyrir 10. júní. Það hjálpar okkur að skipuleggja mönnun frístundaheimilanna út frá fjölda barna sem nýta þjónustuna.
Skráning í frístundaakstur opnar eftir að skólastarf hefst í ágúst. Frekari upplýsingar verða sendar þegar skráning hefst.
Mikilvægt vegna fjölskylduafsláttar: Foreldrar og forsjáraðilar barna sem eiga systkini á leikskólunum Akri, Gimli eða Skógarási, eða hjá dagforeldri, eru beðin um að skrá upplýsingar um systkini í reitinn „Annað“ í umsókninni. Völukerfið heldur sjálfkrafa utan um upplýsingar um systkini í öðrum leikskólum Reykjanesbæjar sem nota kerfið.
Fjölskylduafsláttur (gildir eingöngu af tímagjaldi, þ.e. síðdegishressing dregin frá heildargjaldi) gildir milli skólastiga, þ.e. dagforeldra, leikskóla og frístundaskóla. Gjöld eru greidd eftir á, gjalddagi er síðasti dagur mánaðar og eindagi 20 dögum síðar
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)