- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Reykjanesbær mun opna nýja inniaðstöðu fyrir Golfklúbb Suðurnesja og Púttklúbb Suðurnesja í Íþróttaakademíunni við Krossmóta 58 föstudaginn 28. október. Opnunarhátíð verður haldin af því tilefni kl. 16:30 og verður ýmislegt til gamans gert.
Inniaðstaðan í Íþróttaakademíunni eru tveir salir á annarri hæð. Aðstaðan er mikil lyftistöng fyrir báða klúbbana. Hægt verður að æfa pútt, slá í net og nota golfhermi. Yngsti og elsti kylfingur GS munu slá fyrstu höggin við opnunina og haldin verður púttkeppni. Verðlaun verða veitt fyrir fæstan höggafjölda. Allir eru velkomnir. Boðið verður upp á kaffi og með því.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös