Öskudagur

Hæfileikaríkir krakkar.
Hæfileikaríkir krakkar.

Krakkar, eruð þið byrjuð að æfa öskudagsatriðið ykkar?

Ef ekki, þá skuluð þið drífa ykkur í gang, því „Öskudagur Got Talent“ fer fram í annað sinn í Fjörheimum á öskudaginn þann 10. febrúar.

Í fyrra komu hátt í 300 krakkar í Fjörheima, í skrautlegum búningum með 32 glæsileg öskudagsatriði sem flutt voru á sviði fyrir framan sérstaka dómnefnd. Verðlaun voru veitt fyrir atriði úr 1. – 4. bekk og 5.- 10. bekk. Sigurvegarar í yngri flokki voru þær Berglaug Aþena, Hekla, Katla og Unnur Ísold úr Njarðvíkurskóla en þær Hafdís Eva Pálsdóttir og Gyða Dröfn Davíðsdóttir úr Myllubakkaskóla í eldri. Mæta þær aftur á svæðið með glæsileg atriði?

Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir búninga og létu 40 hópar mynda sig í búningunum sínum.

Það eina sem þið þurfið að gera er að mæta í Fjörheima, Hafnargötu 88, með vel æft öskudagsatriði. Skráning er á staðnum og undirspil sótt á Youtube á staðnum. Allt verður tekið upp á vídeó sem verður hægt að skoða á Youtube. Myndir af sigurvegurum verða birtar í Víkurfréttum og veitt verða verðlaun fyrir bestu/skemmtilegustu atriðin.

Dagskráin stendur frá kl. 12 – 15 og er öllum opin. Foreldrar eru sérstaklega velkomnir.

Allir að byrja strax að æfa sig!