Óskum eftir þátttakendum!

Spennandi alþjóðlegt verkefni með áherslu á leik og dans!

Viltu taka þátt í alþjóðlegum listviðburði í Reykjanesbæ? Markmið hans er að nýta sköpun sem verkfæri til framþróunar samfélagsins, stuðla að inngildingu og auka á sýnileika jaðarhópa. Þátttaka krefst engrar sérþekkingar eða kunnáttu, einungis áhuga á að vera með og hafa áhrif.

Reykjanesbær auglýsir eftir þátttakendum úr hópi íbúa í verkefnið Elegía delle cose perdute. Um er að ræða samfélagsverkefni sem er opið öllum á Íslandi og leggur áherslu á flóttafólk og fólk í leit að alþjóðlegri vernd.

Þátttaka felst í því að mæta á vinnustofur þar sem listafólk leiðir vinnu með þátttakendum. Afrakstur verður sýndur á sérstökum lokaviðburði í Reykjanesbæ og á Vetrarhátíð í Reykjavík. Nánari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á netfangið menning@reykjanesbaer.is Öll hjartanlega velkomin, skráning fer fram hér: 

Skráning

Hvað felst í þátttöku?

  • 30. jan, 1. feb, 6. feb, 8. feb, 10. feb – Vinnustofur og lokaæfing í SBK húsinu í Gróf við Duus safnahús frá kl. 14:00-16:00
  • 4. feb – Æfing með hópum úr Hafnarfirði, Kópavogi og Reykjavík. Verk í vinnslu sýnt á Vetrarhátíð í Reykjavík – kl. 11:00-14:00
  • 11. feb – Lokaviðburður, afrakstur vinnustofa sýndur kl. 12:00-16:00 í SBK húsi í Gróf
  • 12. feb – Uppgjör og eftirvinnsla á Dansverkstæðinu í Reykjavík frá kl. 13:00-16:00

Rútuferðir verða í boði.

Nánar um verkefnið hér: https://www.bpart.cz/en