- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Penninn ehf. átti lægsta tilboðið í sameiginlegu örútboði Reykjanesbæjar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna kaupa á námsgögnum fyrir grunnskólabörn. Samningur milli Reykjanesbæjar og Pennans var undirritaður í síðustu viku og mun hann gilda skólaárið 2018-2019.
Sameiginlegur ávinningur þessara tveggja sveitarfélaga var mjög góður í þessu örútboði eða 64,2%. Almenn ánægja er í báðum sveitarfélögunum. Ávinningur RNB eins og sér var 64,4% eða kr. 9.506.876.-
Alls bárust þrjú tilboð og voru þau öll undir kostnaðaráætlun sveitarfélaganna. Penninn ehf. bauð lægsta heildartilboðsverðið og eftir mat á vöruframboði var tilboði þeirra tekið.
Samningurinn er með framlengingarheimild um tvisvar sinnum eitt ár.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)