- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Í ljósi þess að svo virðist sem Covid19 sé í rénun hefur Neyðarstjórn Reykjanesbæjar samþykkt að víkka starfssvið sitt frá og með 4. maí nk. þannig að áfram verði fylgst grannt með þróun Covid-19 en samhliða einbeiti Neyðarstjórnin sér að samfélagslegum og fjárhagslegum áhrifum heimsfaraldursins.
Miðað er við að áherslur verði eftirfarandi:
Með þessu fyrirkomulagi skapast yfirsýn yfir þá vinnu og aðgerðir sem Reykjanesbær hefur ráðist í vegna þeirrar stöðu sem við nú stöndum fyrir.
Í ljósi frétta af mikilli fjölgun atvinnulausra á svæðinu eru ríki og sveitarfélög að grípa til og undirbúa margvíslegar aðgerðir til að bjarga störfum til lengri tíma litið og halda fyrirtækjum og kennitölum þeirra á lífi. Það er mikilvægt að fyrirtæki í flugtengdri starfsemi, sem lúta alþjóðlegum reglum, gæðakerfum og sérþekkingu starfsfólks, haldi lífi. Það gæti tekið langan tíma fyrir ný fyrirtæki að koma undir sig fótunum í slíkri starfsemi. Í því tilliti er mikilvægt að vinna að aðgerðum til að styðja við þann geira.
Flestir sem eru að missa vinnuna núna eiga rétt á nokkurra mánaða uppsagnarfresti. Að honum loknum taka við atvinnuleysisbætur. Við vonum auðvitað öll að aðstæður breytist sem allra fyrst um leið og við áttum okkur á því að næstu mánuðir verða erfiðir. Með markvissum aðgerðum ætlum við að koma flugvellinum aftur í gang auk þess að skapa ný störf í öðrum greinum. Við megum ekki missa vonina og trú á framtíðina. Við höfum áður sé það svart og náð að vinna okkur út úr erfiðum aðstæðum. Það mun einnig takast núna.
Frá og með mánudegi 4. maí verða ýmsar tilslakanir á stofnunum og vinnustöðum sveitarfélagsins gerðar í kjölfar breytinga á samkomubanni. Nánari upplýsingar verður að finna www.reykjanesbaer.is sem og á heimasíðum skóla og annarra stofnanna.
Eru bæjarbúar hvattir til að kynna sér þær.
Kveðja
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)