Rafræn íbúakosning er hafin

Rafræn íbúakosning um breytingar á deiliskipulagi í Helguvík er hafin. Íbúum gefst kostur á að kjósa til 02:00 þann 4. desember og eins oft og hver vill, ef skoðanir kunna að breytast eftir að kosið hefur verið. Svarvalmöguleikar verða tveir, hlynntur eða andvígur deiliskipulagsbreytingunni. Ef merkt er við hvorugt og haldið áfram innan kerfis jafngildir það að skila auðu. Gott er fyrir kjósanda að vera búinn að ganga úr skugga um að hann sé á kjörskrá og sækja um Íslykil eða rafrænt skilríki eigi kjósandi hvorugt.

Reykjanesbær opnaði fyrr í mánuðinum kosningavef á slóðinni www.ibuakosning.is þar sem nálgast má allar upplýsingar um kosninguna, forsendur, hvað er verið að kjósa um, sjónarmið bæjaryfirvalda og þeirra sem eru mótfallnir deiliskipulagsbreytingunni, upplýsingar um aðstoð við kosningu og hvernig fólk ber sig að við að nálgast auðkenni til að geta kosið. Einnig er tenging af íbúakosningavefnum yfir í kosningahluta kerfisins og rafræna kjörskrá, sem bæði er á íslensku og ensku. Allar grunnupplýsingar vefjarins eru á íslensku, ensku og pólsku.

Kosningaslóðin er virk frá kl. 02:00 24. nóvember til kl. 02:00 4. desember.