Ofan á frá Iðavöllum má sjá hvernig nýtt hverfi, Hlíðarhverfi sprettur upp í Reykjanesbæ.
03.04.2018
Fréttir, Umhverfi og skipulag
Reykjanesbær boðar til framkvæmdaþings í Hljómahöll mánudaginn 9. apríl kl. 15:00 - 18:00. Þingið er ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á svæðinu, bæði fagmönnum og íbúum. Helstu framkvæmdir komandi mánaða verða kynntar og málin rædd.
Frummælendur koma frá nokkrum af stærstu framkvæmdaaðilum og stórfyrirtækjum á svæðinu. Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn.
Með því að smella á þennan tengil getur þú skráð þig á framkvæmdaþingið.