Reykjanesbær eflir lýðræðisþátttöku íbúa af erlendum uppruna

Reykjanesbær hefur síðustu vikur unnið í samstarfi við verkefnið Mitt atkvæði – mín rödd // My Vote – My Voice að fræðsluverkefni og viðburðum sem miðar að því að efla lýðræðisþátttöku innflytjenda og auka þátttöku þeirra í samfélaginu fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.

Verkefnið Lýðræðisþátttaka innflytjenda snýr að því að styrkja þekkingu íbúa af erlendum uppruna á íslenska stjórnmálakerfinu, sveitarstjórnarstiginu og kosningarétti þeirra, auk þess að skapa vettvang fyrir aukna samfélagsþátttöku og samtal við sveitarfélagið.

Sem hluti af verkefninu voru haldnar tvær fræðsluvinnustofur á ensku þar sem farið var yfir réttindi íbúa til að kjósa og bjóða sig fram, kosningaferlið og mikilvægi þátttöku í sveitarstjórnarkosningum. Góð þátttaka var á vinnustofunum og alls tóku 21 þátt.

Þann 29. apríl var einnig haldinn opinn íbúafundur á ensku í Ráðhúsi Reykjanesbæjar á Ásbrú þar sem fulltrúar framboðanna fimm í Reykjanesbæ tóku þátt í pallborðsumræðum. Fundurinn var unninn í nánu samstarfi við Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi (W.O.M.E.N.). Fundurinn var vel sóttur og mættu yfir 40 gestir til að kynna sér áherslur framboðanna og ræða málefni sveitarfélagsins. Fundinum var streymt í beinni útsendingu, upptökuna má nálgast hér. Fyrir íbúafundinn héldu W.O.M.E.N. einnig viðburð á sínum vegum sem bar heitið W.O.M.E.N. sem kjósa og var örvinnustund um kosningarétt, stjórnmálaflokka og kosningaumhverfi á Íslandi.

Verkefnið er hluti af landsverkefninu Mitt atkvæði – mín rödd // My Vote – My Voice þar sem 22 sveitarfélög um allt land hafa tekið þátt í að efla lýðræðisþátttöku íbúa af erlendum uppruna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna.

Með verkefninu vill Reykjanesbær stuðla að aukinni inngildingu og tryggja að fleiri íbúar upplifi að þeir eigi rödd og virkan þátt í samfélaginu.

Reykjanesbær hvetur alla íbúa sem hafa kosningarétt til þess að mæta á kjörstað á laugardaginn 16. maí 2026.