- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Uppbyggingarsjóður Suðurnesja hefur lokið aukaúthlutun styrkja fyrir árið 2026. Tilgangur sjóðsins er að styðja við verkefni sem efla menningu, nýsköpun og atvinnuþróun á Suðurnesjum. Í ár bárust 34 umsóknir og úthlutaði nefndin 32 milljónum til 25 verkefna. Þar af hlutu fjögur verkefni frá Reykjanesbæ styrk úr sjóðnum, samtals 4,45 milljónir.
Sérstök áhersla var lögð á menningarviðburði, safnastarf, varðveislu menningararfs og verkefni tengd sólmyrkvanum sem verður 12. ágúst 2026. Að sögn Loga Gunnarssonar, verkefnastjóra Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja, endurspeglar úthlutunin þann mikla kraft, fjölbreytileika og sköpunargleði sem einkennir samfélagið á Suðurnesjum.
Eftirtalin verkefni á vegum Reykjanesbæjar hlutu styrk að þessu sinni:
List í samtali: viðburðir og safneign
Listasafn Reykjanesbæjar hlýtur styrk til þriggja ólíkra viðburða og verkefna. Annars vegar er um að ræða „Jóga í safninu“ í tengslum við sýningu Erlu Þórarinsdóttur, hins vegar leiðsögn með stjörnuspekingi í tilefni sólmyrkvans í sumar og að lokum skráning og sýning á gjöf frá Aðalsteini Ingólfssyni.
Verkefnið hlaut styrk að fjárhæð kr. 1.000.000
Ljósmyndasafnið í röð og reglu
Markmið verkefnisins miðar að bættri varðveislu ljósmynda Byggðasafns Reykjanesbæjar. Elstu ljósmyndir safnsins eru ríflega 150 ára gamlar og snýst verkefnið um að fá ráðgjöf frá forverði með sérhæfingu á sviði ljósmynda varðandi umbúnað og varðveisluskilyrði.
Verkefnið hlaut styrk að fjárhæð kr. 1.300.000
Myrkvastund í Reykjanesbæ
Myrkvastund í Reykjanesbæ er viðburður sem Reykjanesbær stendur fyrir í fjórum hverfum sveitarfélagsins. Markmið verkefnisins er að hvetja íbúa til að fjölmenna og upplifa sólmyrkvann saman þann 12. ágúst 2026.
Verkefnið hlaut styrk að fjárhæð kr. 1.750.000
Sól, tungl og skuggar
Bókasafn Reykjanesbæjar og Bókasafn Suðurnesjabæjar vinna saman að verkefninu „Sól, tungl og skuggar“. Verkefnin tengjast sólmyrkvanum og fela í sér fræðslu fyrir fullorðan, barnaviðburði, skapandi smiðju og geimþema í sumarlestri safnanna.
Verkefnið hlaut styrk að fjárhæð kr. 400.000
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)