- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Reykjanesbær hefur skráð sig til leiks í sundkeppni milli sveitarfélaga í Hreyfiviku UMFÍ sem fram fer 29. maí til 4. júní nk. Sundlaugargestir eru hvattir til að skrá sig daglega í afgreiðslu sundmiðstöðva Reykjanesbæjar og hversu marga metra þeir syntu. Tveir heppnir þátttakendur í sundkeppninni verða dregnir úr pottinum og fá árskort í Sundmiðstöðina. Frítt verður í sund fyrir alla föstudaginn 2. júní í tilefni hreyfiviku.
Hreyfivika UMFÍ er árleg lýðheilsuherferð og hefur það að markmiði að kynna kosti þess að taka þátt í hreyfingu og íþróttum. Stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og íþrótta-og tómstundafélög í Reykjanesbæ eru hvött til þátttöku í Hreyfivikunni. Hægt er að senda tilkynningu um þátttöku á hreyfivika@gmail.com fyrir 15. maí nk. Nánari upplýsingar um Hreyfivikuna er hægt að nálgast á http://www.umfi.is/hreyfivika-umfi
Umsjón með verkefninu í Reykjanesbæ hefur stýrihópur Heilsueflandi samfélags í samstarfi við íþróttafélögin Keflavík og Njarðvík.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös