- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Á föstudaginn kemur mætast lið Reykjanesbæjar og Árborgar í 16 liða úrslitum spurningaþáttarins Útsvars og hefst útsending kl. 20. Þau Baldur, Grétar og Guðrún koma inn í 16 liða úrslitin eftir frækilegan sigur á sterku liði Seltjarnarness. Lið Árborgar kemur inn í 16 liða úrslitin sem eitt af 4 stigahæstu tapliðum úr síðustu umferð. Ekki munaði þó nema 7 stigum á liðunum og því ljóst að keppnin á föstudag getur orðið æsispennandi.
Þá er ekki úr vegi að skora nú á fólk að mæta í sjónvarpssal og hvetja lið Reykjanesbæjar til sigurs. Þá þarf að mæta í Efstaleiti 1, í höfuðstöðvar RUV, ekki síðar en kl. 19:30, hálftíma fyrir útsendingu og eru allir velkomnir.
Áfram Reykjanesbær!
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)