- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Eiríkur Árni Sigtryggsson, tónskáld, tónlistarkennari og myndlistarmaður, lést 12. ágúst síðastliðinn, tæplega 83 ára að aldri. Eiríkur Árni var fjölhæfur listamaður sem helgaði stóran hluta starfsævi sinnar tónlist, myndlist og kennslu í heimabyggð. Hann var jarðsunginn í kyrrþey miðvikudaginn 26. ágúst.
Eiríkur Árni var útnefndur Listamaður Reykjanesbæjar 2018–2022, en hann hafði þá um langt árabil starfað að tónlist og myndlist, bæði hér heima og erlendis. Hann var fæddur í Keflavík 14. september 1943 og starfaði lengst af í heimabyggð.
Eiríkur var afkastamikið og fjölhæft tónskáld. Verk hans spanna allt frá lagrænum sönglögum til kammertónlistar, kórverka og stærri hljómsveitarverka og hafa verið flutt bæði hérlendis og erlendis. Sinfóníuhljómsveit Íslands, kammerhópar, kórar, einleikarar og einsöngvarar hafa flutt verk hans og átti hann meðal annars verk á Myrkum músíkdögum.
Tónlistarkennsla var einnig stór þáttur í ævistarfi Eiríks. Hann hóf störf við Tónlistarskólann í Keflavík árið 1987 og starfaði síðar við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar frá stofnun hans árið 1999 þar til hann lét af störfum vegna aldurs árið 2010. Þar kenndi hann meðal annars tónfræðagreinar. Hann fékkst jafnframt við kórstjórn og stjórnaði meðal annars Karlakór Keflavíkur og Karlakórnum Þröstum í Hafnarfirði.
Myndlistin skipaði ekki síður mikilvægan sess í lífi Eiríks. Hann hélt fjölda einkasýninga og tók þátt í samsýningum hér heima og erlendis auk þess að miðla þekkingu sinni til yngri kynslóða á myndlistarnámskeiðum fyrir börn og unglinga.
Fjölhæfur listamaður og góður samstarfsmaður
Haraldur Árni Haraldsson, skólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, kynntist Eiríki vel í gegnum áralangt samstarf við skólann. Hann minnist hans sem trausts kennara, fjölhæfs listamanns og góðs samstarfsmanns.
„Ég minnist Eiríks sem góðs samstarfsmanns sem skemmtilegt var og nærandi að spjalla við um tónlist og myndlist, stöðu þeirra listgreina í menntakerfi þjóðarinnar og framgang,“ segir Haraldur.
Haraldur stóð fyrir tónleikum í Bergi í Hljómahöll í september 2018 í tilefni af 75 ára afmæli Eiríks. Þar voru flutt níu ólík tónverk eftir hann, þar af sjö í frumflutningi. Að sögn Haraldar gáfu tónleikarnir góða mynd af þeirri miklu breidd sem einkenndi Eirík sem tónskáld og því hve víða hugur hans leitaði í listsköpuninni.
Þegar Eiríkur Árni var útnefndur Listamaður Reykjanesbæjar árið 2018 var það viðurkenning á löngu og fjölbreyttu starfi hans að tónlist, myndlist og kennslu. Í umfjöllun í tilefni útnefningarinnar kemur jafnframt fram látlaus og hlý sýn hans á eigin listsköpun; hann gaf sér frelsi innan formsins og leitaði víða í tónsmíðum sínum.
Reykjanesbær þakkar Eiríki Árna Sigtryggssyni fyrir langt og farsælt starf hans á sviði tónlistar, myndlistar og kennslu og fyrir framlag hans til menningarlífs í bænum.
Minning hans lifir í verkum hans og hjá þeim fjölmörgu nemendum og samstarfsfólki sem urðu honum samferða í gegnum árin.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)