- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Reykjanesbær hefur náð samningum við Depfabankann á Írlandi/Pbb um framlengingu á 1,8 milljarða kr. láni sem gjaldféll í ágúst í fyrra.
Bankinn hafnaði í fyrstu samningum og erfitt var að leita samninga vegna efnahagskreppunnar og erfiðleika bankans sjálfs sem var í slitameðferð.
Með samningi sem bæjarráð samþykkti í morgun er lánið framlengt um tvö ár. Bæjarráð fagnaði samhljóða að komin væri niðurstaða í málið. "þetta er mjög jákvætt fyrir okkur. Bankinn hefur gefið sér tíma til að fara yfir stöðu bæjarfélagsins og samþykkir þessa samninga í framhaldi af því. Þetta gefur okkur svigrúm til að losa m.a. um skuldabréf sem bærinn á sem nú er að stofnvirði um 8,2 milljarðar kr." segir Árni.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)