Rokksafn Íslands hlaut Nýsköpunar- og hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar á Reykjanesi árið 2019

Frá afhendingu Nýsköpunar- og hvatningarverðlauna ferðaþjónustunnar á Reykjanesi 2019, t.v. Daníel …
Frá afhendingu Nýsköpunar- og hvatningarverðlauna ferðaþjónustunnar á Reykjanesi 2019, t.v. Daníel Einarsson frá Reykjanes Geopark, Tómas Young framkvæmdastjóri Hljómahallar og Rokksafns Íslands og Þuríður Aradóttir Braun frá Markaðsstofu Reykjaness. Ljósmynd: Markaðsstofa Reykjaness.

Nýsköpunar- og hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar á Reykjanesi árið 2019 komu í hlut Rokksafns Íslands. Verðlaunin voru afhent á vetrarfundi ferðaþjónustunnar sem fram fór í Hljómahöll í morgun. Tómas Young, framkvæmdastjóri Hljómahallar og Rokksafns Íslands, tók á móti verðlaununum fyrir hönd safnsins. 

Í umsögn frá Markaðsstofu Reykjaness segir um Rokksafnið: „Sagnaarfur okkar Íslendinga á sér langar rætur og víða um land má finna söfn og sýningar sem geyma og rifja upp fyrir okkur sögu okkar og menningararf. Rokksafn Íslands eins og nafnið ber með sér segir sögu tónlistar á Íslandi allt frá árinu 1830 til dagsins í dag, með sérstaka áherslu á popp og rokktónlist sem er samofin nútímasögu og menningu okkar á Suðurnesjunum.

Þó safnið eigi sér stutta sögu, en það var opnað í apríl 2014 og fagnar því 5 ára afmæli í ár, þá hefur það stimplað sig inn í menningarlíf samfélagsins með uppákomum og sérsýningum sem settar hafa verið upp og reglulega bætast nýjungar við í fjölbreytta flóru safnmuna.

Forsvarsmenn hafa lagt mikinn metnað í uppbyggingu safnsins og leitað leiða til að gera söguna lifandi og skemmtilega á faglegan hátt fyrir gesti. Hvort heldur með því að nýta nútíma tækni eða þróa nýjar lausnir eins og sést með plötuspilaranum hér frammi. Þannig geta gestir tekið virkan þátt í sýningunni og aukið við upplifun sína, meðal annars með því að lagið í sérstökum söngklefa eða grípa í hljóðfæri. Þá geta safngestir einnig nýtt sér tæknina og skoðað söguna með Rokk-appinu.
Rokksafnið á sér enga hliðstæðu á Íslandi og það er einstakt að hafa aðgang að slíkri perlu hér á svæðinu.
Stjórnir Reykjanes UNESCO Global Geopark og Markaðsstofu Reykjaness hafa ákveðið að veita Rokksafni Íslands Nýsköpunar- og hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar árið 2019.“

Rokksafn Íslands sendir stjórnum Reykjanes UNESCO Global Geopark og Markaðsstofu Reykjaness kærar þakkir fyrir að hafa valið Rokksafn Íslands sem verðlaunahafa nýsköpunar og hvatningarverðlaunanna á Reykjanesi í ár. Verðlaunin eru viðurkenning á stöðu safnins og þeirri þróunarvinnu sem hefur átt sér stað frá opnun safnsins árið 2014.