- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Það væru ekki til neinar stjörnur ef aðdáendur væru ekki til. Oft er þetta sama fólkið, en alvöru safnarar eru samt fámennur hópur, sem hefur í gegnum aldirnar haldið til haga mörgu af því sem er til sýnis á söfnum um allan heim.
Safnarar á Íslandi safna ólíklegustu hlutum, en það eru ekki margir sem eru jafn ákafir safnarar á sviði rokk-, popp- og hvers konar dægurtónlistar eins og Keli. Sævar Þorkell Jensson, kallaður Keli, hefur safnað eiginhandaráritunum og úrklippum frá árinu 1964 þegar hann sá Hljóma fyrst á sviði. Keli á eitt stærsta úrklippusafn um dægurtónlist á Íslandi. Hann mætir gjarnan á tónleika með úrklippubók og fær viðkomandi tónlistarfólk til að rita nöfn sín í bókina. Honum er jafnan vel tekið og hefur safnað áritunum flestra poppara og rokkara landsins. Hann á líka eiginhandaráritanir heimsþekktra tónlistarmanna.
Úrklippubækur Kela geyma margskonar fróðleik og spanna dægurtónlistarsöguna í rúmlega hálfa öld. Bækurnar í dag eru rúmlega þrjú hundruð og fimmtíu talsins.
Keli á umtalsvert magn af úrklippum sem tengjast Bubba Morthens, Björk, Bríet, Helga Björns, GDRN, Jónasi Sig, Stefáni Jakobssyni, Hjálmum, Baggalúti og John Grant, svo fátt eitt sé nefnt en Keli verður með bækur sínar til sýnis á Rokksafni Íslands á meðan sýningin stendur.
Opnun sýningarinnar hefst kl. 14:00. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, opnar sýninguna formlega, Jónatan Garðarsson handritshöfundur sýningarinnar heldur stutta ræðu um Kela, tónlistaratriði verður á sviði og í boði verða léttar veitingar fyrir gesti opnunarinnar.
Enginn aðgangseyrir verður á Rokksafn Íslands þennan dag og eru allir velkomnir.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös