Safnahelgi á Suðurnesjum

Söfn á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman um að bjóða í þriðja sinn upp á sameiginlega dagskrá helgina 12. - 13. mars n.k. Söfn, setur og sýningar á svæðinu eru mörg og fjölbreytt og því verður margt á döfinni og fjölbreytt dagskrá. Auk þess eru ýmis gallerí opin þar sem handverk og listmunir eru til sýnis og sölu. Fulltrúar allra sveitarfélaganna fimm á Suðurnesjum hafa unnið sameiginlega að undirbúningi dagskrárinnar og er verkefnið stutt af Menningarráði Suðurnesja auk framlags sveitarfélaganna sjálfra.

Dagskrá safnahelgarinnar má sjá á vefnum safnahelgi.is og einnig á vef hvers sveitarfélags fyrir sig. Í dagskránni kennir ýmissa grasa: Tónleikar, sýningar, fyrirlestrar, upplestur og margs konar uppákomur. Listasmiðja verður fyrir börn, Raggi Bjarna syngur sjómannalög auk þess sem haldin verður uppskriftarkeppni á saltfiskréttum, rokk og ról og harmonikkutónlist. Skessan í hellinum, Heimskautin heilla og Sköpun alheimsins svo fátt eitt sé nefnt. Í boði er sem sagt mjög fjölbreytt menningardagskrá og ókeypis afþreying fyrir alla fjölskylduna. 

Sjá nánar. safnahelgi.is