Safnahelgi á Suðurnesjum er um helgina!

Margt verður á boðstólum um helgina, 11.–12. október, þegar Safnahelgi á Suðurnesjum fer fram. Þá bjóða sveitarfélögin á Suðurnesjum landsmönnum að heimsækja fjölbreytta flóru safna, setra og sýninga þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Ókeypis aðgangur er að allri dagskrá Safnahelgar.

Safnahelgin var formlega opnuð í gær í Gula húsinu við íþróttamannvirkin í Grindavík, þar sem Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, flutti ávarp og Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkur, kynnti hugmyndir um uppbyggingu viðkomustaða fyrir ferðamenn.
Um helgina verður þar einnig sýnd stuttmynd sem dregur upp mynd af áhrifum hamfaranna á líf íbúa bæjarins.

Á dagskránni víða um Suðurnes eru fjölbreyttar sýningar og leiðsagnir, ljóðaupplestur, myndlist og fjölskylduvæn dagskrá fyrir börn.

Alla dagskrá Safnahelgar má finna á safnahelgi.is.