Sala á Njarðarbraut 2

Reykjanesbær hefur tekið ákvörðun um að fara af stað með söluferli á fasteigninni Njarðarvellir 2 í Reykjanesbæ og óskar eftir skuldbindandi tilboðum. Lokið var við byggingu eignarinnar 2014 og hófs starfsemi í húsinu það ár. Í fasteigninni er rekið hjúkrunarheimilið Nesvellir með 60 hjúkrunarrýmum. Fasteignin er í langtímaleigu til íslenska ríkisins og er markmiðið að selja hana aðila sem sérhæfir sig í fasteignarekstri ef ásættanleg tilboð berast.

Áréttað er að aðeins erum söluferli á fasteign að ræða en ekki breytingu á þeirri starfsemi sem nú er í húsnæðinu.

Markmiðið með sölunni er að losa um fjármagn sem nýta má í aðrar framkvæmdir á vegum Reykjanesbæjar.

Allar nánari upplýsingar varðandi sölu á Njarðarvöllum 2 eru veittar hjá Libra lögmönnum ehf. í síma 551 1348.

Tilboðsfrestur er til kl. 17.00 þann 18. maí nk. Tilboð berist til Libra Lögmanna ehf, Tjarnargötu 36, Reykjavík eða á netfangið arni@libralaw.is.

Reykjanesbær áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum tilboðum.