Samningur um foreldranámskeið fyrir flóttafólk undirritaður

Hera Ósk Einarsdóttir, Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, Ásta Kristín Guðmundsdóttir, Kjartan Már Kj…
Hera Ósk Einarsdóttir, Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, Ásta Kristín Guðmundsdóttir, Kjartan Már Kjartansson, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Vilborg Pétursdóttir og Laufey Bjarnadóttir við undirritun samnings.

Á dögunum undirritaði Kjartan Már bæjarstjóri og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra samning um styrk við gerð foreldrafærninámskeiðs fyrir flóttafólk í sveitarfélaginu í samstarfi við Barna- og fjölskyldustofu. Samningurinn kveður einnig á um að Reykjanesbær kynni og deili þeirri reynslu og þekkingu sem mun skapast af verkefninu með öðrum sveitarfélögum en Mennta- og barnamálaráðuneytið leggur til fjármagn að ígildi stöðugildis til eins árs.

Reykjanesbær mun þróa og bjóða upp á sérhæfð foreldrafærninámskeið fyrir flóttafólk sem tala ekki íslensku og geta þ.a.l. ekki nýtt sér þau foreldrafærninámskeið sem þegar standa til boða. Megináherslan verður á fjölskyldur á flótta sem fengið hafa vernd á Íslandi en námskeiðið mun einnig standa breiðari hóp til boða, þ.e. innflytjendum sem ekki tala íslensku. Markmiðið er að auka farsæld fjölskyldna sem fengið hafa vernd og veita snemmtækan stuðning við þær sem lið í þjónustu Reykjanesbæjar við flóttafólk.

„Mikilvægt er að standa vel að móttöku flóttafólks og stuðla að farsælli inngildingu barnafjölskyldna í samfélagið. Markviss stuðningur við foreldra í uppeldi barna er ein arðbærasta fjárfestingin samkvæmt rannsóknum. Fyrir ári síðan undirritaði ég samning við Háskóla Íslands um slík námskeið í leik- og grunnskólum landsins. Mikilvægt er að námskeiðin standi öllum til boða, ekki síður flóttafólki og innflytjendum sem hafa ekki enn náð fullri færni í íslensku,“ sagði Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra við þetta tilefni.