Samúðarkveðjur til vina okkar í Trollhättan

Bæjaryfirvöld hafa sent borgarstjórn og íbúum vinabæjar Reykjanesbæjar í Svíþjóð; Trollhättan, innilegar samúðarkveðjur vegna þeirra hörmungaratburða sem þar urðu í gær.

Ungur maður réðst inn í grunnskóla í borginni, myrti einn kennara og einn nemanda og særði fleiri alvarlega. Starfsmenn og íbúar Reykjanesbæjar eru harmi slegnir yfir þessum atburði og hugur okkar er hjá vinum okkar í Svíþjóð.