- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Verkefni Bókasafns Reykjanesbæjar „Saumað fyrir umhverfið“ fékk í gær Hvatningarverðlaun Upplýsingar, sem er fagfélag á sviði bókasafns- og upplýsingafræða. Verðlaunin voru veitt í fyrsta sinn í gær á Bókasafnsdeginum 2019.
Verkefnið hefur verið í gangi í Bókasafninu um árabil undir stjórn Guðnýjar Kristínar Bjarnardóttur bókasafns- og upplýsingafræðings. Í verkefninu hafa verið saumaðir taupokar í Pokastöð, sem hefur það að markmiði að draga úr notkun plastpoka. Verkefnið var stór liður í Ljósanótt þetta árið, þar sem plastlausum áherslum var haldið á lofti.
Umfjöllun um verkefnið á Hringbraut í tilefni plastlausrar Ljósanætur
Um verkefnið Saumað fyrir umhverfið segir í texta tilnefningarinnar: Það er hugsað sem umhverfisátak til að vekja fólk til umhugsunar um ofnotkun plasts og til að draga úr notkun þess, til dæmis plastpoka undir bækur til útlána á safninu.
Í verkefninu eru góð tengsl við bækurnar og umhverfið. Verkefnið gefur hugmynd um kolefnisspori til framtíðar og getur verið öðrum bókasöfnum fyrirmynd til eftirbreytni og er ekki flókið að innleiða. Verkefnið er viðeigandi innlegg bókasafna inn í plastlausan september og hjálpar til við að styðja við bann gegn plastpokanotkun.
Verkefnið getur flokkast sem nýbreytniverkefni og telst ekki hluti af daglegu starfi viðeigandi starfsstaðar, eins og segir í vinnureglum dómnefndar. Verkefnið er hvatning til eftirbreytni og góðra verka bæði innan og utan viðkomandi starfsstaðar. Verkefnið getur þróast með stöðugt nýjum þátttakendum inn á bókasöfnin sem geta lagt sitt af mörkum til betri framtíðar. Verkefnið getur hvort sem er átt við á skólabókasöfnum eins og almenningssöfnum og á opinberum vettvangi.
Í tilnefningunni er nefndur umsjónarmaður verkefnisins í bókasafni Reykjanesbæjar, Guðný Kristín Bjarnadóttir. Bókasafnið og umsjónarmenn verkefnisins hljóta því veglegan verðlaunagrip, Lóu, eftir Hafþór Ragnar Þórhallsson
Í dómnefnd voru Margrét Björnsdóttir af hálfu undirbúningshóps Bókasafnsdagsins, Margrét Sigurgeirsdóttir af hálfu Samtaka forstöðumanna almenningsbókasafna og Þórunn Erla Sighvats af hálfu stjórnar Upplýsingar.
Dómnefnd Hvatningarverðlauna Upplýsingar árið 2019 stóð frammi fyrir erfiðu verkefni. Það var úr vöndu að velja þar sem sex verkefni voru tilnefnd. Dómnefndin fór eftir vinnureglum og hafði til hliðsjónar ofangreind markmið með verðlaununum. Til þess að gefa hugmynd um fjölbreytnina í tilnefningunum komu meðal annars fram þessar lýsingar í tilnefndum verkefnum:

Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)