- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Um helgina lýkur tveimur sýningum á vegum Listasafns Reykjanesbæjar, sem staðið hafa síðan í janúar. Um er að ræða sýningu á verkum Gunnlaugs Scheving, Til sjávar og sveita, þar sem tekin eru fyrir verk sem endurspegla vel þá breytingu sem varð í íslenskri myndlist á millistríðsárunum. Sýningin er samstarfsverkefni Listasafns Íslands, Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Listasafns Árnesinga. Sýningarstjóri er Björg Erlingsdóttir.
Þá lýkur einnig sýningunni Sjálfsagðir hlutir, á vegum Hönnunarsafns Íslands, en tilgangur hennar er að kynna efni og sögu þekktra og oft klassískra hluta í hönnunarsögunni. Sýndir eru nokkrir af þeim hlutum sem við lítum á sem sjálfsagða í daglegu lífi og efnisvali þeirra gerð skil. Augnlinsur, tannstönglar, klósett og bréfaklemmur eru dæmi um hluti sem gegna allir á sinn hátt mikilvægu hlutverki og hafa jafnvel sannað gildi sitt sem „klassískir“ á þann hátt að endurnýjun eða endurhönnun virðist óþörf þegar við virðum þá fyrir okkur í dag. Sýningarstjóri er Þóra Sigurbjörnsdóttir.
Sýningarnar eru báðar staðsettar í Duushúsum, menningar- og listamiðstöð Reykjanesbæjar. Þar er opið kl. 12-17 virka daga og 13-17 um helgar og aðgangur er ókeypis.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)