- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Í lok maí samþykkti ríkisstjórn Íslands að veita 45 milljónum króna til fyrri hluta aðgerðaáætlunar sem ætlað er að mæta þeirri röskun sem orðið hefur á framboði atvinnu á Suðurnesjum, með fækkun starfa, m.a. í kjölfar gjaldþrots flugfélagsins WOW.
Liður í þeirri áætlun er að bjóða upp á skapandi sumarstörf fyrir ungt fólk á Suðurnesjum á aldrinum 17-25 ára en reikna má með að atvinnumöguleikar þess hóps hafi skerst verulega vegna umræddrar röskunar.
Nú hafa störfin verið auglýst á vef Reykjanesbæjar undir „laus störf“ og hér þarf að bregðast hratt við því umsóknarfrestur er skammur eða til 19.júní. Athygli er vakin á að störfin standa öllum á Suðurnesjum til boða, sem uppfylla skilyrðin að öðru leyti, þrátt fyrir að umsóknum þurfi að skila á vef Reykjanesbæjar. Samhliða er leitað eftir verkefnisstjórum til að stýra verkefnum hópsins og er umsóknum einnig skilað á sama stað.
Nánari upplýsingar um störfin má sjá hér að neðan. Með því að smella hér má komast beint inn á umsóknarvefinn
Ungu fólki á Suðurnesjum á aldrinum 17-25 ára gefst kostur á að sækja um starf við „Listhóp ungmenna“. Listhópnum er ætlað að sinna skapandi starfi í Reykjanesbæ sem tekur mið af áhuga og reynslu þátttakenda sjálfra undir leiðsögn verkefnisstjóra. Gert er ráð fyrir að verkefnið hefjist 24.júní og standi í 8 vikur. Umsóknum skal skilað í gegnum sérstaka umsókn á heimasíðu Reykjanesbæjar undir laus störf og þar skulu eftirfarandi atriði m.a. koma fram:
a) Hugmynd viðkomandi að skapandi verkefnum fyrir hópinn
b) Rök fyrir því að viðkomandi ætti að vera valinn í hópinn
Farið verður yfir allar umsóknir og nefnd á vegum ábyrgðaraðila velur hópinn. Ekki er víst að allir komist að.
Leitað er eftir verkefnisstjóra í eftirfarandi verkefni: Ungu fólki á Suðurnesjum á aldrinum 17-25 ára gefst kostur á að sækja um starf við „Listhóp ungmenna“. Listhópnum er ætlað að sinna skapandi starfi í Reykjanesbæ sem tekur mið af áhuga og reynslu þátttakenda sjálfra undir leiðsögn hópstjóra. Gert er ráð fyrir að verkefnið hefjist 24.júní og standi í 8 vikur. Umsóknum skal skilað í gegnum sérstaka umsókn á heimasíðu Reykjanesbæjar undir laus störf og þar skulu eftirfarandi atriði m.a. koma fram:
a) Hugmynd viðkomandi að skapandi verkefnum fyrir hópinn
b) Rök fyrir því að viðkomandi ætti að vera valinn
Farið verður yfir allar umsóknir og nefnd á vegum ábyrgðaraðila velur hópinn. Ekki er víst að allir komist að.
Valgerður Guðmundsdóttir, menningarfulltrúi, netfang valgerdur.gudmundsdottir@reykjanesbaer.is
Berglind Ásgeirsdóttir, skólastjóri vinnuskóla Reykjanesbæjar, netfang berglind.asgeirsdottir@reykjanesbaer.is
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)