Skemmtiferðaskipið Plancius leggst að Keflavíkurhöfn á fimmtudag

Skemmtiferðaskipið Plancius kemur í Keflavíkurhöfn núna á fimmtudaginn 11. september. Skipið leggst að bryggju kl. 08:00 og verður í höfninni til kl. 17:00. Á meðan viðdvöl skipsins stendur verður upplýsingabás mannaður á bryggjunni þar sem gestir geta nálgast ýmsar upplýsingar um bæinn og svæðið.

Plancius er 90 metrar að lengd og um 3.400 brúttótonn. Um borð eru um 90 farþegar auk 50 manna áhafnar. Farþegarnir eru fjölbreyttur hópur frá ýmsum löndum og á mismunandi aldri, margir hverjir spenntir að skoða bæinn, versla og njóta menningar og afþreyingar.

Þetta er einstakt tækifæri fyrir verslanir, veitingastaði og aðra þjónustuaðila í Reykjanesbæ til að bjóða upp á þjónustu fyrir erlenda gesti. Ef þú ert með þjónustu, vörur eða afþreyingu sem gæti höfðað til farþega og áhafnar, hvetjum við þig til að senda upplýsingar til Halldórs Hermannssonar hafnarstjóra (halldor.k.hermannsson@reykjanesbaer.is) eða Þuríðar hjá Markaðsstofu Reykjaness (thura@visitreykjanes.is). Þannig verður hægt að koma upplýsingunum á framfæri.

Þann 31. ágúst síðastliðinn kom skemmtiferðaskipið Azamara Quest í Kefalvíkurhöfn og gekk sú heimsókn afar vel. Með heimsóknum sem þessum eykst sýnileiki svæðisins sem áfangastaðar fyrir smærri skemmtiferðaskip.

Reykjaneshöfn hefur gert samstarfssamning við sænska fyrirtækið Nordic Port Group AB um markaðssetningu svæðisins gagnvart skemmtiferðaskipum og var samningur þess efnis undirritaður í vor. Reykjanesbær hlakkar til þeirra spennandi tækifæra sem slíkar heimsóknir geta haft í för með sér.