Skemmtileg þrettándagleði í Reykjanesbæ laugardaginn 8. janúar

Frá þrettándagleði.
Frá þrettándagleði.

Skemmtileg þrettándagleði í Reykjanesbæ

Þrettándagleðinni sem fyrirhuguð var á þrettándanum miðvikudaginn 6. janúar hefur verið frestað vegna óhagstæðs veðurs til laugardagsins 9. janúar. Dagskrá helst óbreytt en hefst klukkustund fyrr en áætlað var og hafa tímasetningar verið uppfærðar hér að neðan í samræmi við það. Hér eru sem sagt réttar tímasetningar.

Luktarsmiðja í Myllubakkaskóla kl. 16:00 - 17:00

Áður en dagskrá hefst, frá kl. 16-17, verður boðið upp á skemmtilega luktarsmiðju í Myllubakkaskóla. Fólk er beðið um að koma með krukku með sér að heiman sem hægt verður að breyta í fallega lukt til að taka með sér í blysförina frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði á Hafnargötu. Allt efni og ljós (fyrir utan krukkuna sjálfa) fæst á staðnum. Verð fyrir efni er kr. 300 og greiðist með peningum á staðnum. Gengið er inn um inngang við Suðurtún. Allir velkomnir.

Blysför að hátíðarsvæði kl. 17:00

Klukkan 17:00 verður gengið í fylgd álfakóngs og drottningar, álfa, púka og barna með luktir frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði við Hafnargötu 8. Á hátíðarsvæði mun Grýla gamla ásamt fleiri fjölskyldumeðlimum stýra dagskrá á sviði þar sem álfakóngur og –drottning ásamt álfakór syngja söngva tengda þrettándanum. Grýla tekur svo lagið með börnunum og púkar og fleiri kynjaverur verða á sveimi á svæðinu.

Brenna, kakó og piparkökur

Þrettándabrennan verður á sínum stað Bakkalág ef veður leyfir og Reykjanesbær býður gestum að ylja sér á heitu kakói og piparkökum.

Flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Suðurnes

Það fer svo vel á því að ljúka dagskrá og kveðja jólin með flugeldasýningu að hætti Björgunarsveitarinnar Suðurnes sem reikna má með að verði stórfengleg að vanda.

Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Skátafélagið Heiðabúar, Júdódeild UMFN, Björgunarsveitin Suðurnes og Jólahljómsveit og Trommusveit Tónlistarskólans taka þátt í dagskránni.

Bílastæði eru við Ægisgötu og Ráðhús, Tjarnargötu 12.