- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Fimmtudaginn 4. júní munu Reykjanesbær og Skessan í hellinum standa fyrir heilsueflingarviðburði fyrir alla fjölskylduna, þar sem gengið eða skokkað er frá hafnarvoginni við Keflavíkurhöfn og út í smábátahöfnina eftir göngustígnum við sjávarsíðuna.
Um er að ræða 1,6 km langa gönguferð eða skokk þar sem allir geta tekið þátt og notið útivistar í okkar fallega sveitarfélagi. Bæjarstjórinn og Skessan munu taka þátt og vonandi sem flestir bæjarbúar, ungir jafnt sem aldnir.
Allir sem ljúka göngunni og skila inn þátttökunúmerunum hafa möguleika að vera dregnir út og vinna heilsueflingarglaðning. Þegar allir þátttakendur eru komnir í mark mun jógabílinn sjá um að liðka þátttakendur.
Dagskrá:
Framkvæmd er í höndum 3N og Reykjanesbæjar.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)