- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Nú líður senn að því að nemendur grunnskóla Reykjanesbæjar hefji störf. Mánudaginn 25. ágúst eru skólasetningar en nánari upplýsingar fyrir hvern skóla eru birtar á heimasíðum þeirra. Um 300 fyrstu bekkingar eru nú að hefja grunnskólanám og taka sín fyrstu skref inn í grunnskólana okkar.
Alls eru nemendur í grunnskólunum okkar um 2756 sem er fækkun um 59 nemendur frá skólabyrjun fyrir ári síðan þegar þeir voru 2815.
Flestum nemendum og foreldrum finnst gott að komast aftur í sínar venjur hausts og vetrar þó erfitt geti reynst að kveðja sumarið. Framundan eru arkandi börn um allan bæ með skólatöskur á bakinu og því eru ökumenn beðnir um að sýna sérstaka aðgát í nágrenni skóla.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)