- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Skólaþjónusta Reykjanesbæjar er að fara af stað með foreldrafærninámskeiðið Uppeldi barna með ADHD. Góður rómur hefur verið gerður að námskeiðunum. Skráningin fer fram rafrænt á Mitt Reykjanes og er það niðurgreitt að hluta af skólaþjónustunni.
Tilgangur námskeiðsins er að fræða foreldra um áhrif ADHD á tilveru barna. Einnig að styðja þá í að tileinka sér uppeldisaðferðir sem henta börnum með ADHD. Foreldrar barna sem hafa hamlandi einkenni ofvirkni og/eða athyglisbrest (ADHD) samkvæmt formlegri skimun eða fullnaðargreiningu geta sótt námskeiðið. Að sögn Einars Trausta Einarsson yfirsálfræðings hentar efni námskeiðsins best fyrir foreldra barna á aldrinum 5 til 12 ára, sem hafa ekki margar eða flóknar fylgiraskanir. „Foreldrar skoða núverandi stöðu, gera áætlanir og framfylgja þeim til að taka á eða fyrirbyggja ýmsan vanda sem algengt er að upp komi. Markmiðið er að foreldrar læri hagnýtar og sannreyndar aðferðir sem nýtast þeim til lengri tíma.“
Kennt verður á þriðjudögum og miðvikudögum kl. 17:00 - 19:00 í Fjölskyldusetrinu við Skólaveg 1. Námskeiðskostnaður fyrir par er 10.000 krónur en 8.000 krónur fyrir einstakling.
10. október
16. október
24. október
30. október
7. nóvember
21. nóvember
Frekari upplýsingar um námskeiðið veitir Kristín í síma 421-6700 og í netfangið kristin.reynisdottir@reykjanesbaer.is
Greiðsla fyrir námskeið þarf að berast fyrir 3. október. Hægt er að greiða í þjónustuveri Reykjanesbæjar eða með því að millifæra á reikning nr. 121-26-1 kt. 470794-2169, með skýringunni: Uppeldi barna með ADHD. Kvittun greiðslu skal senda á netfangið einar.t.einarsson@reykjanesbaer.is
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)