Skólaþróunarsjóður auglýsir styrki

Hlutverk sjóðsins er að veita styrki og viðurkenningar sem að stuðla að nýbreytni- og þróunarstarfi í leik-, gunn- og tónlistarskólum Reykjanesbæjar. Með þróunarverkefnum er átt við verkefni sem stuðla að framförum í uppeldi, kennslu og öðrum þáttum skólastarfs. Styrkirnir eru veittir í samræmi við reglur fræðsluráðs um styrki til þróunarverkefna frá 2006. Linkur á heimasíðu

http://reykjanesbaer.is/upload/files/Reglum um styrkveitingar fræðsluráðs úr Skólaþróunarsjóði Manngildissjóðs.pdf

Sækja þarf um rafrænt á reykjanesbaer.is fyrir 1. júní 2011.
Frekari upplýsingar veitir Eiríkur Hermannsson fræðslustjóri, netfang fraedsluskrifstofa@reykjanesbaer.is