- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Foreldrar barna í leikskólanum Heiðarseli og Heiðarskóla lýsa yfir þungum áhyggjum af mengun frá kísilveri Sameinaðs Sílikons hf. í Helguvík við bæjarráð í morgun. Bréf frá foreldrafélögum skólanna, ásamt leiðréttingu var lagt fyrir ráðið í morgun.
Skólastjórnendur og fræðsluyfirvöld í Reykjanesbæ fylgjast grannt með gangi mála og munu vera í góðu í sambandi við Umhverfissstofnun og Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja, sem hefur umsjón með hollustuháttum í leik- og grunnskólum á svæðinu.
Eins og fram kom á fundi bærráðs í morgun sýna niðurstöður samstarfsnefndar um sóttvarnir að styrkur arsens í nágrenni kísilverksmiðjunnar í Helguvík sé langt undir þeim mörkum sem talin eru valda bráðum alvarlegum heilsuspillandi áhrifum. Þá er talið að galli hafi verið í mælingu Orkurannsókna í mælistöð þeirra í Helguvíks sem sýndi hátt hlutfall arsens í andrúmslofti.
Í bréf foreldrafélaganna segir: „Við lýsum yfir þungum áhyggjum af mengun frá kísilveri Sameinaðs sílikons hf. í Helguvík. Heiðasel og Heiðarskóli, ásamt hluta byggðar í Reykjanesbæ, eru staðsettir á svokölluðu þynningarsvæði verksmiðjunnar. Samkvæmt skýrslu Umhverfisstofnunnar virðist gildi arsens, sem er eitrað efnasamband, langt yfir þeim mörkum sem gefin eru upp í mati á umhverfisáhrifum, eða allt að tuttugufalt meira. Í þessu ljósi taka stjórnir foreldrafélaga skólanna undir með bæjarstjórn Reykjanesbæjar, og telja óásættanlegt annað en að starfsemi kísilversins verði stöðvuð á meðan úrbætur á mengunarvörnum fara fram.
Okkur er umhugað um velferð nemenda og starfsfólks skólanna. Samfélagið á ætíð að njóta vafans gagnvart mögulegri heilsufarslegri skaðsemi.“
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)