- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Fyrir um 100 árum síðan stóð Duusverslunin, sem þá var starfrækt, fyrir jólatrésskemmtunum fyrir bæjarbúa í Bryggjuhúsi sem er elsta húsið í Duushúsalengjunni. Allt upp undir 300 börn komu þar saman og dönsuðu í kringum jólatréð og voru mörg þeirra að sjá þar jólatré í fyrsta sinn.
Fyrir tveimur árum dustuðum við rykið af þessari sögu og héldum gamaldags jólaball í Bryggjuhúsi. Áður var boðið upp á föndurstund þar sem fjölskyldur föndruðu skreytingar á jólatréð og í salinn en einnig til að taka með heim. Hefur þetta verið einstaklega vel heppnað og því verður leikurinn endurtekinn í ár.
Sunnudaginn 1. desember frá kl. 14 – 16 er fjölskyldum boðið að stíga út úr amstri hversdagsins og njóta þess að koma saman í jólastofunni í Bryggjuhúsi. Búin verða til kramarhús, jólahjörtu og músastigar og salurinn skreyttur. Þar er einnig upplagt tækifæri til að taka jólamyndir af börnunum í jólastofunni. Gamaldags jólaball í anda Duusverslunar verður svo haldið sunnudaginn 8. desember frá kl. 14-16. Allir eru velkomnir á þessa viðburði og aðgangur er ókeypis.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)