Föstudaginn 8. maí fór fram hátíðleg athöfn við leikvöllinn við Hatún og Smáratún þar sem nýtt nafn, „Immuróló“, var formlega afhjúpað.
Nafngjöfin er tileinkuð Ingibjörgu Sesselju Björnsdóttur, jafnan kölluð Imma, sem hefur búið á Smáratúni í áratugi og ávallt sinnt rólónum af einstakri alúð. Imma hefur lagt sitt af mörkum til að halda svæðinu snyrtilegu og aðlaðandi og hefur um leið verið börnum í hverfinu hlý og örugg nærvera.
Tillagan um nafngjöfina kom frá íbúum í hverfinu og nágrönnum Immu, sem vildu með henni heiðra framlag hennar til samfélagsins. Menningar- og þjónusturáð Reykjanesbæjar samþykkti tillöguna fyrr á árinu.
Athöfnin var hluti af Barna- og ungmennahátíðinni BAUN og var vel sótt í blíðskaparveðri af aðstandendum Immu, íbúum í hverfinu og öðrum gestum.
Við athöfnina var skilti með nýju nafni afhjúpað og Ingibjörg Sesselja barnabarn og nafna Immu hélt tölu fyrir hönd fjölskyldunnar um einstaka konu sem hefur alla tíð gefið af sér og haft áhuga á bæði umhverfi sínu og fólkinu í kringum sig. Þá sungu leikskólabörn af Vesturbergi nokkur lög fyrir viðstadda.
Með nafngjöfinni er Immu sýndur verðskuldaður heiður fyrir óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins og megi saga hennar verði öðrum innblástur til að láta gott af sér leiða í nærumhverfi sínu.