- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Í ljósi hertra samkomutakmarkana, þar sem einungis er gert ráð fyrir að 10 manns megi koma saman munu Bókasafn Reykjanesbæjar, Duus Safnahús og Rokksafn Íslands loka á meðan takmarkanirnar gilda. Lokanir taka gildi á morgun, laugardag 31. október, og gert er ráð fyrir að þær gildi til og með 17. nóvember nema ef breytingar verða á reglum. Áfram verður hægt að skila bókum í bókalúgu á Bókasafni og ekki verður sektað fyrir bækur sem hafa skiladag á umræddu tímabili.
Á meðan þessu stendur hvetjum við íbúa til að fylgjast með starfsemi safnanna á vef- og samfélagsmiðlum þeirra en bókasafn, byggðasafn, listasafn, rokksafn og Skessan í hellinum munu öll leita leiða til að halda uppi rafrænni starfsemi á meðan aðrar leiðir eru ekki færar.
Stöndum saman og munum að við erum öll almannavarnir!
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)