Spegilsýnir opnar í Listasafni Reykjanesbæjar

Speglasýnir
Speglasýnir

Ljósmyndasýningin Spegilsýnir verður opnuð í Listasafni Reykjanesbæjar föstudaginn 5. mars kl. 18.00. Listamennirnir Bára Kristinsdóttir , Einar Falur Ingólfsson, Jónatan Grétarsson, Katrín Elvarsdóttir, Spessi og Þórdís Erla Ágústsdóttir eiga verk á sýningunni og sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson.
John Szarkowski, yfirmaður ljósmyndadeildar Nútímalistasafnsins í New York (M.O.M.A) og helsti sérfræðingur í bandarískri ljósmyndun setti fram athyglisverða kenningu um ljósmyndun árið 1978 þar sem hann skipti ljósmyndurum í tvo flokka, þá sem litu á ljósmyndun sem tæki til tjáningar á einkalegum viðhorfum, sem sagt speglamenn, og þá sem litu á hana sem tæki til hlutlausrar frásagnar af hinu séða, þ.e. gluggamenn. Sýningin í Listasafni Reykjanesbæjar er tilraun til að ögra nokkrum valinkunnum ljósmyndurum, fá þá til að takast sérstaklega á við spegilhugmyndina sem hér er nefnd. Sumir þeirra hafa alltaf verið spegilmenn, aðrir eru gluggasérfræðingar, en flestir hafa þeir farið bil beggja í ljósmyndum sínum, reynt að virkja hið hlutlæga til að draga fram hið huglæga.

Sýningin er í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum og stendur til 18. apríl. Safnið er opið virka daga frá kl. 11.00 - 17.00 og um helgar frá kl. 13.00 - 17.00, aðgangur er ókeypis.