Spegluð kennsla í stærðfræði á unglingastigi

Starfsfólk Heiðarskóla ásamt fræðslustjóra og framkvæmdastjóra Keilis.
Starfsfólk Heiðarskóla ásamt fræðslustjóra og framkvæmdastjóra Keilis.

Ánægjulegur  fundur var haldinn í Heiðarskóla, Reykjanesbæ, þann 11. mars.  Íris Ástþórsdóttir, Þóra Guðrún Einarsdóttir og Þórey Garðarsdóttir, stærðfræðikennarar  kynntu fyrir stjórnendum og fulltrúum Keilis upptökur sínar af innlögnum námsþátta í stærðfræði fyrir 8.-10. bekk grunnskóla.  Verk þetta er samstarf Heiðarskóla og Keilis og tengist speglaðri kennslu, en Keilir og grunnskólar Reykjanesbæjar hafa sett sér að vera í fararbroddi þegar kemur að innleiðingu kennsluhátta 21. aldar.  Öllum nemendum og kennurum á landinu verður gert mögulegt að nota upptökurnar við nám og kennslu í stærðfræði.
Spegluð  (flippuð) kennsla felst í því að nemandi hlustar á upptökur kennara af efninu þegar honum hentar og vinnur verkefni í kjölfarið með aðstoð kennara ef þörf er á.  Með því er komið til móts við einstaklingsmiðaðan lærdóm.
Samkvæmt samningi Keilis og Heiðarskóla verða upptökurnar komnar á netið, aðgengilegar öllum næsta haust.  Þar með verða komnar á netið upptökur í stærðfræði , náttúrufræði, raungreinum og íslensku í 8. – 10. bekk. 
Segja má að með þessu skrefi sé speglaða kennslan komin á gott skrið enda fjölmargir skólar að stíga skref í þá átt. Að sögn Hjálmars Árnasonar skólameistara Keilis, Sóleyjar Höllu skólastjóra Heiðarskóla og Gylfa Jóns fræðslustjóra Reykjanesbæjar er þessi áfangi afar ánægjulegur og vonandi að skólamenn á landinu öllu muni kynna sér efnið og nýta það til að auka áhuga nemenda  og um leið gæði kennslunnar.
Verkið er unnið með styrk frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem og sveitarfélögum á Reykjanesi.  Námsgagnastofnun hefur tekið að sér að vista efnið á slóðinni www.vendikennsla.is.
Á myndinni eru fulltrúar Heiðarskóla, ásamt fulltrúa Keilis og fræðslustjóra Reykjanesbæjar.