Staða aðalskipulagsvinnu Reykjanesbæjar 2008-2024

Aðalskipulag Reykjanesbæjar til 2024.
Aðalskipulag Reykjanesbæjar til 2024.

Tillaga að Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2008-2024 var auglýst 29. maí til 31. júlí 2009.

Á þeim tíma bárust góðar ábendingar og athugasemdir sem stýrihópur skipulagsins hefur brugðist við til að gera skipulagið betra.

Því miður hafa orðið tafir á gildistöku þessa nýja skipulags, þar sem bíða þarf eftir að breytingar á Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar, sem nú er í auglýsingu, hafa gengið í gegn.

Stefnt er að því að staðfesta nýtt Aðalskipulag Reykjanesbæjar í vor, enda mikilvægt að framtíðarsýn bæjarfélagsins taki gildi sem fyrst.