- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Menntasvið Reykjanesbæjar hefur tekið saman greiningu á stöðu leikskólamála í bænum með hliðsjón af barnafjölda, fjölda leikskólaplássa og markmiðum bæjaryfirvalda um að taka börn inn í leikskóla frá 18 mánaða aldri.
Greiningin miðast við stöðu mála 15. ágúst 2026 og byggir á gögnum um fjölda barna fæddra á árunum 2021–2025. Samkvæmt henni eru börn á leikskólaaldri alls 1.066 þegar miðað er við 18 mánaða aldursviðmið. Heildarfjöldi leikskólaplássa í 12 leikskólum Reykjanesbæjar er 1.190.
Þetta þýðir að markmiðið um 18 mánaða innritun er raunhæft miðað við heildarfjölda leikskólaplássa. Greiningin sýnir þó jafnframt að svigrúm leikskólakerfisins er takmarkað og minnkar hratt ef aldursviðmið lækkar eða ef fleiri börn en áætlað er ná 18 mánaða aldri á sama tíma.
Við lægri aldursviðmið, til dæmis 15–16 mánaða, fer fjöldi barna yfir 1.100 og við 12–13 mánaða aldur nálgast hann fulla nýtingu leikskólaplássa. Þetta undirstrikar að leikskólakerfið hefur takmarkað svigrúm til að mæta ófyrirséðum breytingum, svo sem tímabundinni fjölgun barna eða þeirri mikilvægu breytu sem felst í því að tryggja að leikskólar séu á hverjum tíma mannaðir með hæfu og fagmenntuðu starfsfólki.

Samhliða leikskólastarfinu gegnir dagforeldrakerfið mikilvægu hlutverki í þjónustu við yngstu börnin. Í Reykjanesbæ starfa nú 29 dagforeldrar og eru að meðalatali um 4,4 börn hjá hverju dagforeldri. Þarna er því til staðar nokkuð svigrúm sem nýtist vel til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og þangað til börn byrja í leikskóla.
Rétt er jafnframt að minna á að niðurgreiðslur sveitarfélagsins vegna barna 18 mánaða og eldri hjá dagforeldrum miðast við að foreldrar greiði sama gjald og greitt er fyrir leikskólapláss. Með þessu er tryggt jafnræði foreldra óháð því hvort barn nýtir þjónustu dagforeldris eða leikskóla.
Niðurstöðurnar varpa skýru ljósi á mikilvægi þess að horfa til framtíðar í skipulagi leikskólamála. Til að tryggja stöðugleika, fyrirsjáanleika og áframhaldandi gæði leikskólastarfs er nauðsynlegt að skoða markvisst möguleika á fjölgun leikskólaplássa, meðal annars með stækkun núverandi leikskóla og uppbyggingu til lengri tíma.
Greiningin verður nýtt sem hluti af áframhaldandi vinnu Reykjanesbæjar við heildarúttekt á leikskólamálum og framtíðarskipulagi þessa mikilvæga skólastigs.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)