Stærsti dagur Ljósanætur framundan

Ljósanótt er komin á fullt í Reykjanesbæ og framundan er stærsti dagur hátíðarinnar. Fjölbreytt dagskrá verður í bænum í dag, laugardaginn 5. september, og búist er við miklu lífi á hátíðarsvæðinu frá morgni og fram á kvöld.

Föstudagurinn fór vel fram og samkvæmt upplýsingum frá lögreglu gekk nóttin vel. Nú tekur laugardagurinn við með þéttri dagskrá fyrir alla aldurshópa.

Einn af föstu og skemmtilegustu liðum Ljósanætur er árgangagangan sem leggur af stað eftir hádegið og endar við stóra sviðið. Þar koma saman fjölmargir árgangar og sérstaklega er 50 ára árgangurinn jafnan áberandi og setur sinn svip á gönguna og móttökuna á hátíðarsvæðinu.

Dagskráin heldur áfram víða um bæinn í allan dag með tónlist, sýningum, ókeypis barnadagskrá og ýmiss konar uppákomum.

Í kvöld verður síðan stórtónleikadagskrá Ljósanætur á stóra sviðinu. Þar koma fram Leikfélag Keflavíkur með brot úr We Will Rock You, Alaska1867, Hipsumhaps, Birgitta Haukdal og Kristmundur Axel ásamt hljómsveit og Emmsjé Gauti. Hin árlega flugeldasýning Ljósanætur verður kl. 22:00. Tónleikunum verður einnig útvarpað á Rás

Gestir eru hvattir til að gefa sér góðan tíma, kynna sér lokanir og aðkomu að hátíðarsvæðinu og njóta dagsins saman.

Alla dagskrá Ljósanætur má finna á ljosanott.is.

Ljósanótt stendur yfir í Reykjanesbæ dagana 3.–6. september.