- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Í fjölskyldustefnu Reykjanesbæjar er kveðið á um að árlega skuli veittar viðurkenningar til fjölskylduvænna fyrirtækja í Reykjanesbæ. Með því vill Reykjanesbær hvetja stjórnendur fyrirtækja til að setja sér fjölskyldustefnu. Í ár verða slíkar viðurkenningar veittar í níunda sinn en þegar hafa fjölmörg fyrirtæki hlotið nafnbótina "fjölskylduvænt fyrirtæki".
Óskað er eftir tilnefningum frá starfsmönnum fyrirtækja sem telja sinn vinnustað fjölskylduvænan. Rökstuðningur starfsmanna og fjölskyldustefna fyrirtækisins þarf að fylgja með tilnefningunni.
Fjölskyldu- og félagsmálaráð fer yfir tilnefningar og viðurkenningar verða veittar á degi um málefni fjölskyldunnar sem haldinn verður þann 26. febrúar 2011.
Tilnefningar þurfa að hafa borist fyrir 27. janúar til Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ, merktar FJÖLSKYLDUVÆN FYRIRTÆKI. Einnig má senda tilnefningar með netpósti á netfangið fjolskylda@reykjanesbaer.is.
Félagsmálastjórinn í Reykjanesbæ
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös